top of page
Image by Jon Flobrant

Um Okkur

Pulsar Ísland er rekið af Nordic Precision ehf, fjölskyldufyrirtæki með yfir 30 ára reynslu úr útivistar- og veiðiheiminum. Frá stofnun fyrir tæpum 10 árum höfum við haft eitt skýrt markmið: að færa íslenskum viðskiptavinum úrvalsbúnað sem sameinar gæði, nýjustu tækni og áreiðanleika.

Síðan 2018 höfum við verið stoltir umboðs- og dreifiaðilar Pulsar á Íslandi – leiðandi fyrirtækis í digital night vision og thermal tækni á heimsvísu. 

Valley

Um Pulsar

Pulsar er hluti af Yukon Advanced Optics Worldwide, hátæknirisa með höfuðstöðvar í Litháen og rætur frá 1991. Allar vörur Pulsar eru 100% hannaðar, þróaðar og framleiddar í Evrópu. Pulsar hefur  unnið til fjölda verðlauna á undanförnum árum fyrir framúrskarandi hönnun á gæðavörum með nýsköpun og einfalt notendaviðmót að leiðarljósi. Auðvelt er að finna umfjöllun um vörurnar með stuttri leit á internetinu til staðfestingar um gott orðspor.

Á stuttum tíma hafa gæði Pulsar vörunnar spurst út á Íslandi og er nú að finna hjá hinum ýmsu viðbragðsaðilum og atvinnumönnum ásamt fjölda útivistar-og veiðimanna.

Með náinni samvinnu við Pulsar tryggjum við að íslenskir viðskiptavinir hafi aðgang að nýjustu tækni, áreiðanlegum búnaði og stuðningi sem stenst hæstu kröfur.

Í dag má finna Pulsar búnað hjá fjölmörgum viðbragðsaðilum, atvinnumönnum og ástríðufullu útivistarfólki um allt land. Fyrir okkur er Pulsar ekki bara vara – heldur loforð um að þú sjáir það sem aðrir sjá ekki, með búnaði sem stenst tímans tönn

bottom of page